Þegar verið er að velta fyrir sér vali á flugum er eðlilegt að spyrja sig hvaða flugur skila flestum fiskum – og jafnframt hvaða flugur eru mest notaðar. Í því samhengi er gagnagrunnur Angling IQ afar öflugur og í raun sá eini sem heldur kerfisbundið utan um notkun flugna í veiðibókum.
Við vinnslu þessarar fréttar var ekki horft til afbrigða einstakra flugna, heldur voru allar útgáfur sömu flugu sameinaðar undir einu nafni. Þannig skipti ekki máli hvort fluga væri til dæmis svört eða rauð – einungis nafnið sjálft var haft til hliðsjónar. Listinn er því ekki tæmandi heldur endurspeglar heildarnotkun flugna frá því Angling IQ hóf starfsemi sína.
Vert er að hafa í huga að niðurstöðurnar ráðast af því hverjir skrá veiði í Angling IQ og hvaða ár eru með samning við kerfið. Að mörgu leyti kemur listinn ekki á óvart, þó það veki athygli að flugur á borð við Black Sheep skuli ekki vera á meðal þeirra efstu, líkt og ýmsar aðrar vel þekktar og öflugar flugur.




Engu að síður er listinn afar áhugaverður og gefur skýra mynd af því hvaða flugur hafa reynst hvað öflugastar samkvæmt gögnum Angling IQ. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá flugu á borð við Valbein á listanum.
| Fluga | Fjöldi |
| Sun Ray Shadow (SRS) | 15.982 |
| Frances | 7.880 |
| Collie Dog | 5.827 |
| Haugur | 4.037 |
| Green Butt | 2.305 |
| Silver Sheep | 2.082 |
| Valbeinn | 2.028 |
| Skuggi | 1.348 |
| Míkró/Micro | 1.329 |
| Green Brahan | 1.262 |
| Friggi | 1.191 |