
Á liðnu sumri kom Haugurinn ótrúlega sterkur inn og er þessi frétt unnin upp úr skráningum hjá Angling IQ.
Í Laxá í Kjós liggja fyrir tvær skráningar á Hauginn, 78 og 21 lax, sem gerir samtals 99 laxa. Þar með var Haugurinn aflahæsta flugan í ánni sumarið 2025.
Í Norðurá gaf Haugurinn 83 laxa og var þar einnig skráður sem aflahæsta flugan.
Í Langá liggja fyrir þrjár skráningar og gaf Haugurinn þar samtals 67 laxa, einnig aflahæst í ánni.
Í Þverá/Kjarrá eru tvær skráningar og gaf Haugurinn þar 80 laxa í þessum tveimur ám saman.
Gera má ráð fyrir að þar sem skráð er Micro Hitch sé um Haug gárutúbu að ræða. Ertu að fá’ann veit til þess að í einu holli hafi Haugur míkró gárutúba gefið 19 laxa.
Í Elliðaánum gaf Haugurinn 47 laxa og er þar einnig skráður sem aflahæsta flugan.
Það er nokkuð ljóst að laxarnir hafa verið fleiri en hér eru taldir, enda eru einungis hluti ánna teknar saman. Niðurstaðan er þó skemmtilega skýr:
Haugurinn er án efa ein fengsælasta laxafluga landsins.
| Á | Haugur (laxar) | Heildarafli | Hlutfall |
| Laxá í Kjós | 99 | 686 | 14,4 % |
| Norðurá | 83 | 1.150 | 7,2 % |
| Þverá / Kjarrá | 80 | 1.828 | 4,4 % |
| Elliðaár | 47 | 725 | 6,5 % |
Þegar tölurnar eru settar í samhengi við heildarafla ánna sést hversu afgerandi Haugurinn er.
Í Laxá í Kjós var flugan notuð í 14,4 % af öllum lönduðum löxum, sem er einstaklega hátt hlutfall fyrir eina flugu.
Í Norðurá skilaði Haugurinn 7,2 %, í Elliðaánum 6,5 %, og í Þverá/Kjarrá 4,4 %, þrátt fyrir mjög sterkt veiðisumar.
Samtals gaf Haugurinn 309 laxa af 4.389, eða um 7 % af öllum lönduðum fiski í þessum fjórum ám, sem undirstrikar stöðu hans sem einnar fengsælustu laxaflugu landsins sumarið 2025.