Eftirlit með hverju?

Ertu að fá´nn rakst á færslu á Facebook og fannst hún frekar skondin en færsla er eftir Guðfinn Sölva Karlsson eða Finnur Karlson á Facebook og er færslan tekin þaðan og notuð í þennan pistli

Glæpasögur úr bransaum vol.2

Matvælaeftirlitið kom á LEMMY áðan og sögðu að fiskar i fiskabúrinu okkar mega líklegast ekki vera því það er svo mikilli rokktónlist og þeim líður örugglega illa! 🧐 

Ég spurði hvort afleiðingar væru að þeir mundu deyja afþví engir fiskar eru að deyja hjá okkur og þá var mér sagt að ef Matvælastofnun mundi aflífa fiska að þá er viðurkenndi og mannúðlegi mátin þeirra að drepa þá með hljóðbylgjum! 🤷‍♂️

Ef ég þarf að losa mig við þá og það á mannúðlegan máta, þarf ég þá að hækka?

Við kaupum aldrei nýja fiska og þeir fjölga sér bara sjálfir og stækka mikið og stundum of mikið þannig við gefum þá, enda taktur einstaklega heppinlegur á LEMMY for water love making sem vanir menn segja að sé ekki mjög basic ef fiskar eru ekki sáttir við umhverfið. ❤️

Svo má ekki gleyma að á LEMMY eru öll fiska börnin fædd og uppalin við góða tónlist og þekkja ekkert annað en svo er tvöfalt gler, fristandandi búr og séð um að allt sé geggjað. 🤘

Ætli fiskarnir væru sammála því að fara af æskuheimilinu og frá fjölskyldunni ef þeir vissu það er annað hvort frítt fæði og Guns’n’Roses eða fara með Matvælastofnun í hljóðbylgjur og á Sushi Social? 🤷‍♂️

Núna er Ertu að fá´nn spurn hefur Matvælastofnun einhvern tíman kíkt niður í eldiskví og séð hvernig er umhorfs þar.  Hins vegar vill Ertu að fá´nn benda Matvælastofnun á það að fiskar hafa ekki eyru og því heyra þeir ekkert, hinsvegar finna þeir fyrir bylgjum og virðist það bara hafa góð áhrif á fjölgun þeirra eins og Finni Karls bendir. Í ljósi þess verður Ertu að fá´nn draga þá áliktun að Rokk tónlist hafi góð áhrif á æxlun fiskanna á Lemmy. Einngi langar Ertu að fá´nn beina þeim tilmælum til Matvælastofnunar að hafa frekar eftirlit með eldis fyrirtækjun sem sunda sitt eldi í sjó í staðin fyrir að eltast við eigendur hunda og fiska í búrum sem gerir ekkert annað en að stofnunin verður til athlægis og missir trúverðuleika sinn

Sigurður Héðinn

Áskrift að klúbbnum

Skráðu þig í Demantaklúbb Ertu að fá’ann.

Aðgangur að sérstöku efni, hugmyndafræði og beinni tengingu við miðilinn.

Enginn hávaði – bara gæði.

Lífið er veiði

Vinsamlega bíddu..

Velkominn í Demantaklúbbinn.

Þú færð tölvupóst innan skamms með næstu skrefum.