Föstudaginn 16. janúar hélt Landssamband veiðifélaga vegna frumvarps um lög um lagareldi (sjókvíaeldi) sem er nú í samráðsgátt. Fundurinn var vel sóttur af formönnum og félagsfólki í veiðifélögum landsins.
Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem þess er krafist að frumvarpið verði endurskoðað verulega. Ályktunin er í viðhengi en í stuttu máli snýst hún um eftirfarandi:
• að stöðvuð verði frekari stækkun opins sjókvíaeldis á frjóum laxi og sett skýr, tímasett stefna um tækniskipti yfir í lokuð kerfi og ófrjóan fisk
• að áhættumat erfðablöndunar verði bindandi, aldrei notað til aukinnar framleiðslu og aðgerðir í ám teljist ekki „mótvægisaðgerðir“
• að friðunarsvæði verði skýrð og lögfest í lögum og vernd stækkuð (Eyjafjörður, Seyðisfjörður og Öxarfjörður), og að felldar verði brott undanþáguheimildir sem geta opnað friðuð svæði fyrir eldi
• að dregið verði úr réttaróvissu um laxahlut og komið í veg fyrir framleiðsluaukandi undanþágur sem gætu aukið eldi frjós lax umfram heildarlaxamagn
• að viðurlög vegna stroks verði raunverulega letjandi
• að ekki verði sett óheft aðgengi skylda að ám og veiðistöðum án samráðs, meðalhófs og skýrra skilyrða
• að skaðabótaleið verði raunhæf með léttari sönnunarbyrði
• að burðarþolsmat verði heildstætt og taki til alls álags
• að formlegt samráð við hagsmunaaðila verði eflt en ekki veikt
• og að tryggð verði skýr fjármögnun til vöktunar, rannsókna og nauðsynlegra verndaraðgerða fyrir villta laxastofna og lífríki ferskvatns.
Málið er afar mikilvægt og hefur verið meðal umdeildustu náttúru- og atvinnumála hér á landi undanfarin ár, enda snertir það vernd villtra laxastofna, byggðir og sjálfbæra nýtingu auðlinda hér á landi.
