TÍU ÖFLUGAR FLUGUR

Þegar verið er að spá í flugur fyrir Ísland þá er gott að hafa í huga og leita sér upplýsinga varðandi veður og vatnshæð því þetta eru mikilvægustu skilyrðin til veiða.

Hvernig er hægt að að vera nokkuð viss um að vera með réttu flugurnar og svo byggist náttúrulega á hverju veiðimenn hafa trú á. En þær tíu flugur sem er sem eru nokkuð öruggar og gefa við flestar aðstæður. Skipta flugur flugur einhverju máli mitt mat er já svona almennt séð flugan skiptir miklu máli. Það er ekki að óskekju að sumar flugur eru sterkari en aðrar og þegar ég er að tala um flugur þá er ég oftast að ræða um smáflugur og skilgreining á smáflugu þá er ég að tala um flugur í stærðum #12 – #18 enn einnig stærð #10 en það miðast við aðstæður. Í gegnum árin hefur að verið já mér að þegar ég er að hnýta þá hnýti ég t.d. 100 flugur í stærð #10, 200 í stærð #12 og svo 100 flugur í stærð #14. Reynsla hefur kennt með að sölu hæsta fluguan er oftast #12 og það er vegna þess að stundum er hún stóra fllugan eða lítla flugan.  Spurning er alltaf hvað á að velja í boxin? Þegar verið er að ræða um flugur þá er verið að tala um fæestar flugurnar í öllum gerðum og stærðum.

Hér er listinn yfir 10 öflugustu flugunum (Flokkum)

Sun Ray Shadow er að öllum líkindum mest notaða flugan í dag og geri ég engan mun á því hvort að flugan sé með bláum, gulum eða hvítum væng þetta er sama flugan en bara í annarri útgáfu

Frances hvort sem það er Hexi, Keila, Túba eða fluga þá er þetta nánast ein sú öflugast og ég hef stundum haldið þvi fram að svartur tommu túba með gulum haus sé ein af þeim sterkust sem hefur verið hönnuð. Ein öflugast leitar flugan er svaartur Farances með gulum haus í stærðum #14 tvíkrækja og #14 og #16 þríkrækja á gull krók

Gáru túbur hér eru möguleikarnir endalausir og það er að gáru túban getur verið í öllum stærðum frá 1 ½ tómmu Sun Ray Shadow með níu sentimetra væng niður í smæstu mikró túbu 10-15 millimetra langt plast með stuttum vænt og ummáli 12 til 18 millimetrar. Flugurnar sem hafa reynst mjög vel eru míkró Sun Ray, Valgerður, Coolie Dog, Haugur og ýmis önnur afbrigði af míkró túbum.

Silver Sheep kyngi mögnuð fluga og þá sérstaklega í minni stærðunum #14 tvíkrækja og #14-#16 þríkrækjur besta á silfur krókum en stundum á svartan krók í tvíkrækjunum.

Flúð hans Hilla Hans er ótrúlega öflug fluga og virkar við flestar aðstæður

BóBó er einnig fluga úr smíðju Hilla Hans og þetta er fluga sem er ótrúlega öflugu og hefur reynst mjög vel t.d. í Elliðaánum og í fleirum ám

Colli Dog í öllum stærðum og hefur t.d. ¾ áltúban reynst firna sterk í Hofsá og Selá í Vopnafirði en er mjög sterk í öllum ám og sem smá flugu er hún best á silfur krók. Svo er hægt að hafa rauðan haus og kallast hún þá Collie Camparí skemmtilegt afbrigði

Sjáandinn hans Palla Garðar er mjög öflug fluga og er hún hnýtt á gull krók og hefur reynst firra vel

Blue Boy einnig úr smiðju Palla er mjög góð fluga

Haugur er að öllum líkindum ein öflugasta flugan sem til er bæði á svörtum, silfur eða gull krókum . Lesa hér um hversu öflugur Haugurinn er

Eflaust finnst mögum að ég sleppi nokkrum flugum já það er rétt ég sleppi mörgum öflugum flugum eins og Green Brahan Kobeling, Garp, Skugga, Nagla, Munro ´s Killer, Hairy Mary, Blue Charm og Metalica eru allt flugur sem ég sleppi en þær eru mjög góðar og hafa skilað mörgum fiskunum . Eins og ég hef sagt áður þá fer val á flugum að miklu leiti eftir trú manna það sem einum finnst veiði sexy finnst öðrum ekki.

Listinn er óendanlegur þegar kemur að flugum og það myndi æra óstöðugan að mæla með öllum flugum. Auðvitað er það þannig að veiðimenn eiga sínar uppáhalds flugur sem eru kannski ekki á þessum lista og það er bara þannig.  Við eigum allir okkar upphalds flugur og tengjast þær allar einhverjum minningum frá liðinni tíð. Sem hafa reynst viðkomandi vel og hlaðið í minningarbankan, gefið viðkomandi góða veiði eða jafnvel stóran fisk það þessir þættir eru þeir sem gera ákveðnar flugur að upphalds flugunni.  

Lífið er veiði

Sigurður Héðinn

Áskrift að klúbbnum

Skráðu þig í Demantaklúbb Ertu að fá’ann.

Aðgangur að sérstöku efni, hugmyndafræði og beinni tengingu við miðilinn.

Enginn hávaði – bara gæði.

Lífið er veiði

Vinsamlega bíddu..

Velkominn í Demantaklúbbinn.

Þú færð tölvupóst innan skamms með næstu skrefum.