908 umsaganir bárust 

Eins og kemur fram í samráðsgátt stjórnvalda þá bárust 908 umsagnir vegna draga að frumvarpi til laga um sjókvígaeldi (lagareldis). Þetta er mikil þátttaka og svo virðist sem það er almenn óánægja með umrædd drög.  Hagmunaaðilar á Íslandi sem hafa tekjur af villtum laxi gagnrýna það helst að verið sé að færa of mikil völd um sjókvígjareldi frá Hafrannsóknarstofnum til ráðherra. Einnig hefur verið mikil gagnrýni á það að í frumvarpinu eigi að minnka viðurlög við slysasleppingum sem geta átt sér stað og finnst sumum að vegið sé að náttúrulegum stofnum og það sé ótrúlega hliðhollt fyrirtækjunum sem stunda eldi í sjó. Það eitt að minnka refsiákvæðin að mestu leiti úr nýju drögunum miðað við það sem var að finna í síðasta frumvarpi  um sjókvígaeldi (lagareldi) sem átti að leggja fram í tíð síðustu ríkisstjórnar. Að færa aukið vald til ráðaherra getur skapað ákveðna hættu eins og gert er ráð fyrir í drögunum t.d. áhættumat til erfðablöndunar sé ekki lengur bindandi fyrir ráðherra. Slíkt getur aukið hættuna á kjördæmapoti. Hagmunaaðilar hafa bent á að að búið er að taka út mikilvæga þætti úr fyrri drögum um lög að sjókvígaeldi (lagareldi) í það sem nú liggur fyrir. Bent hefur verið á að það séu nánast engar afleiðingar vegna slysaslepping eða stroku fisk fyrir eldisfyrirtækin (rekstarleyfishafan). Fróðlegt verður að fylgjast með hvernig stjórnvöld ætla að vinna úr þessum fjölda umsagna og hvort tekið verður tilliti til þeirra að einhverju leiti. Það munu næstu mánuðir skera úr um.

Áskrift að klúbbnum

Skráðu þig í Demantaklúbb Ertu að fá’ann.

Aðgangur að sérstöku efni, hugmyndafræði og beinni tengingu við miðilinn.

Enginn hávaði – bara gæði.

Lífið er veiði

Vinsamlega bíddu..

Velkominn í Demantaklúbbinn.

Þú færð tölvupóst innan skamms með næstu skrefum.