Sá þáttur sem veiðimenn spá hvað mest í er veðrið og hvernig mun komandi sumar líta út með tilliti til vatnsbúskapar. Í þessar veðurblíðu sem hefur verið undanfarið þá er vert að kíkja aðeins á snjóalög á landinu til að átta sig á hvernig staðan er í dag.

Á vef Veðurstofu Íslands sést að það er ekki mikill snjór á landinu og mjög víða er autt en einhver snjóþekja á sumum stöðum. Er þetta að eitthvað sem menn þurfa að óttast? Svar við þeirri spurningu er bæði já og nei. Það eina sem við getum vonað úr þessu er að það verði rigningar sumar árið 2026 og því verður þetta að öllum líkindum smáflugu sumar þetta árið eins og staðan er í dag. Sumarið kemur og hvernig það verður vitum við ekki en vonandi verður það okkur hliðhollt þ.e.a.s. rigningar sumar. Hvar er mesta hættan á þurrka sumri? Það er náttúrulega á Suðvesturlandi og Vesturland, en Norðurland og Norðausturland mun fara betur út úr sumrinu heldur en hin landsvæðin.