Síðastliðinn sunnudag var stafrænt félagsskírteini fyrir árið 2026 sent á alla félagsmanna SVFR sem hafa greitt félagsgjaldið í ár, og eru með gilt netfang skráð á Mínum síðum á svfr.is.
Pósturinn var sendur frá netfanginu smartsolutions.is, í nafni SVFR.
Hægt er að vista félagsskírteinið í Apple Wallet ef viðkomandi er með iPhone eða í Google Wallet í Android-snjallsíma.

Vegna öryggisstillinga í tölvupósti vill SVFR benda á að það getur gerst að skilaboðin lendi í ruslpóstmöppu (e. Junk). Því biður SVFR félagsmenn sína að að athuga ruslpóstinn ef pósturinn finnst ekki í innhólfi félagsmanna.
Fyrir utan að vera aðgengilegt og snyrtilegt í símanum vil SVFR benda félagsmönnum á að félagsskírteinið veitir afslætti hjá samstarfsaðilum SVFR. Yfirlit yfir samstarfsaðila og afsláttarkjör félagsmanna má finna í hlekknum hér að ofan