BFFI: Briths Fly Fair International

Helgina 7-8 febrúar var BFFI haldin í Staffordshire County Showground í Staffordshire og er þetta með stærstu sýningum á Englandi og þekkja margir íslendingar til hennar. Að þessu sinni fór vaskur hópur íslendinga á sýninguna bæði sem hnýtarar, sýnendur og svo sem gestir.

Baldur og Sibbi, Mynd Reiða Öndin

Meðal hnýtaranna voru þeir Baldur Hermansson og Sigurbergu Guðbrandsson (Sibbi), var þetta fyrsta ferð Baldurs á sýninguna en Sibbi hefur farið margsinnis. Reiða Öndin skellti sér á sýninguna með fríðu föruneyti og gerðu þeir góðan róm af sýningunni . Reiða Öndin gerðist útsendari Ertu að fá´ann og tók nokkrar myndir fyrir okkur.

Ekki verður annað séð að það hafi verið mikið að gera hjá flughnýtrum sýningarinnar

Mikið að gera á hnýtingarbekknum. Mynd Reiða Öndin
Myndir: Reiða Öndin

Það er nokkuð ljóst að sýningin hefur heppnast vel og segja má að það hefur verið stemmning á sýningunni enda er um að ræða eina stærastu sýningu sinnar tegundar í Bretlandi og hefur hún verið haldin árlega á annan áratug.

Það voru fleiri íslendingar á sýningunni eins og Veiðþjónusta Strengur, Icelandic Outfitters og Stóra Laxá voru með bása á sýningunni og var mikið að gera hjá þeim þessa tvo sýningardaga.

Nokkrar stemmnings myndir af BFFI fengnar frá Ingimundi Bergssyni

Áskrift að klúbbnum

Skráðu þig í Demantaklúbb Ertu að fá’ann.

Aðgangur að sérstöku efni, hugmyndafræði og beinni tengingu við miðilinn.

Enginn hávaði – bara gæði.

Lífið er veiði

Vinsamlega bíddu..

Velkominn í Demantaklúbbinn.

Þú færð tölvupóst innan skamms með næstu skrefum.