10 sterkustu flugurnar í Borgarfirði og á Snæfellsnesi

Höldum áfram með yfirferð okkar á 10 öflugustu flugurnar í hverjum fjórðung fyrir sig og núna er það Borgarfjörðurinn og Snæfellsnesið sem er tekið fyrir. Ekki eru allar ár á svæðinu í samstarfi við Angling IQ og það svona skekkir myndina aðeins en þó ekki. Gaman er að sjá hvernig mynstrið er og hvað þetta í raun er svipað milli áa en þó ekki. Hinsvegar er hægt að sjá ákveðið munstur og séð hvaða flugur eru hvað öflugastar.

Til dæmis sést að í Norðurá þá skila þessar tíu flugur tæplega 33 % af heildarveiðinni.

Tölur fengnar frá Angling IQ

Í Þverá/Kjarrá sést hvað Rauður Frances er öflugur því hann er með tæplega 14% af heildar veiðinni og er það örugglega með því hæsta sem sést á einstaka flugu, í Þverár/Kjarrá skila þessat tíu flugur rúmlega 49% af heildarveiði.

Tölur fengnar af Angling IQ

Í Langá er mynstrið aðeins öðruvísi en þar trónir Haugur á toppnum og svo kemur Hulk fast á hælum hans. Tíu aflahæstur flugurnar gáfum 42 % af heildarveiðinni

Tölur fengnar af Angling IQ

Hítar þar er Rip hæst með 9,7 % og þar er listin aðeins öðru vísi en í öðrum ám á svæðinu, tíu öflugustu gáfu 46% af heildarveiði

Tölur fengnar af Angling IQ

Straumfjarðará þar gaf Garnet rúmlega 14% af heildarveiðinn og nú munu margir spyrja sig hvað fluga er Garnet það er Frances hexi bæði svartur og rauður. Tíu sterkustu hér gáfu tæplega 58% sem er svona með því hæsta sem hefur sést í þessari yfirferð að svo komnu máli

Tölur fengnar af Angling IQ

Áskrift að klúbbnum

Skráðu þig í Demantaklúbb Ertu að fá’ann.

Aðgangur að sérstöku efni, hugmyndafræði og beinni tengingu við miðilinn.

Enginn hávaði – bara gæði.

Lífið er veiði

Vinsamlega bíddu..

Velkominn í Demantaklúbbinn.

Þú færð tölvupóst innan skamms með næstu skrefum.