Hér hnýtum við BÓBÓ eftir Hilmar Hansson og þetta er mjög öflug flugu og ætti í raun að vera í sem flestum boxum.
Hún hefur reynst einstaklega vel og þá sérstaklega í Elliðaánum þetta er svona ein af þessum flugum sem ég verð að vera með í mínum boxum eða allavega eiga nokkrar og hafa þær með í veiðitúrnum. Hér er hnýtt á VMC #14: 9617NI og það sem gerir þennan öngul af sértaklega hentugan í þessa hnýtingu er að leggurinn er aðeins lengri heldur en á hefðbundnu túbu-önglunum. Ég hef þá reglu að þegar ég er búinn að landa fiski á þessa öngla þá nota ég ekki fluguna aftur. Þetta eru viðkvæmir önglar og því er ekki vert að taka áhættuna með að nota þá aftur enda hefur flugan gert sitt gang.