Tíu aflahæstu flugurnar stóðu undir 34,1% af öllum skráðum löxum í gagnasafninu Angling IQ árið 2025. Gögnin byggja á 35,33% af heildarveiði landsins samkvæmt tölum frá Angling IQ.
Hafa verður í huga að ekki ná allar ár landsins inn í gagnasafnið, þar á meðal Vatnsdalsá, Laxá í Ásum, Eystri og Ytri Rangárnar og Stóru-Laxá. Heildarveiði ársins 2025 var um 33.000 laxar samkvæmt bráðabirgðatölum Hafrannsóknarstofnunar.
Við úrvinnslu gagnanna var ekki gerður greinarmunur á útfærslum sömu flugu. Rauður Frances og Rauður Frances keila voru þannig sameinaðir í einn flokk. Sama gildir um Svartan Frances og mismunandi útgáfur af Sun Ray Shadow (t.d. SRS og keiluútgáfur af Sun Ray).


Samkvæmt tölunum ætti val á flugum fyrir næsta sumar ekki að vera flókið. Listinn byggir á gagnsæjum og traustum gögnum, eins og skráningar í veiðibók gefa tilefni til. Hér eru flugur sem veiðimenn þekkja og hafa notað um árabil – sumar í áratugi, aðrar skemur. Auðvitað eigum við öll okkar uppáhaldsflugur – og oft fylgja þeim góðar minningar við bakkann.
Sjá svæðisskiptingu 2025
Nánari sundurliðun eftir landsvæðum má finna hér að neðan.
Tíu sterkustu flugurnar á SV-landi 2025
Tíu sterkustu flugurnar í Borgarfirði og á Snæfellsnesi
Tíu sterkustu flugurnar í Dölunum og NV-landi
Tíu sterkustu flugurnar á Norðurlandi og Norðausturlandi