Af mölinni og aftur heim
Ertu að fá’ann rakst á þessa mögnuðu mynd sem lýsir á áhrifaríkan hátt lífshlaupi Atlantshafslaxins – frá mölinni í ánni, út á haf og aftur heim. Okkur fannst hún eiga vel heima hér og vonum að lesendur hafi gaman af að skoða hana.
Lífsferill laxins er í raun með því stórbrotnasta sem þekkist í náttúrunni. Frá því að hrognin liggja falin í mölinni, þar til fiskurinn heldur til hafs og finnur síðan aftur leið sína heim í sína fæðingará – oft eftir þúsundir kílómetra ferðalag – er saga sem fá dýr geta jafnað.
Það er því sárt að sjá hversu miklu álagi villti laxinn stendur frammi fyrir í dag. Við berum ábyrgð á því að virða þessa tegund og umgangast hana af varfærni og umhyggju.
Lífið er veiði – en veiðin er líka ábyrgð

Smellið á myndina til að skoða hana í stærri upplaus eða fisjið hana út með tveimur fingrum.