Saga Sun Ray Shadow

Það er alveg ljóst að Sun Ray er að verða, eða nú þegar orðin, ein öflugasta flugan sem notuð er við laxveiðar. Hún er að öllum líkindum ein aflahæsta fluga sem nú er til og afbrigði af henni eru til í óteljandi myndum.

Sun Ray Shadow original Icelandic fly fishing
Sun Ray Shadow

Áður en lengra er haldið er best að minnast á Collie Dog sem varð til löngu áður en Sun Ray Shadow leit dagsins ljós. Collie Dog var mikið notuð í skoskum ám hér áður fyrr. Eins og svo margar góðar veiðiflugur er hún auðveld í hnýtingu og kannski er það þess vegna sem hún hefur horfið í Sun Ray skuggann.

Fyrstu Collie Dog flugurnar voru hnýttar annaðhvort á öngul eða á túbur og þá gjarnan notað rör úr BIC kúlupennum. Hárin voru tekin aftan af afturloppum Border Collie hunda sem voru og eru algengir í sveitum Skotlands. Enda var ástandið orðið þannig að ef Border Collie hundur sá skæri hringaði hann skottið undir sig og settist á það til að vera ekki klipptur – eins og Stuart Foxall segir frá í grein sinni um Sun Ray Shadow. Það var hin upprunalega fluga.

Snemma á áttunda áratugnum fór Englendingur að nafni Ray Brooks til Noregs ásamt eiginkonu sinni í leit að hinni fullkomnu laxveiði. Hann fór víða en staðnæmdist að lokum við ána í Lærdal í Noregi og varð alveg uppnuminn af ánni og umhverfi hennar.

Flugan var upphaflega hnýtt á glært plast og með náttúrulegum íkorna, bæði yrjóttum og brúnum. Flugan varð svo öflug að Ray fékk einkaleyfi á hana. Hún var hnýtt af dönsku fyrirtæki sem hét Lawrock, með hvítan undirvæng fyrir skolað vatn og brúnan undirvæng fyrir tærara vatn.

Hvað laxinn sér er ekki vitað en hvort sem um álaseiði, sandsíli eða steinsugu er að ræða er eitt á hreinu: tökurnar geta verið mjög ofsalegar.

Sun Ray Shadow AKA Skuggi
Sun Ray Shadow aka Evening Dress
Nokkur afbrigði af Sun Ray Shadow
Sun Ray Shadow aka Blámi

Flugan fór eins og eldur í sinu um laxveiðiheiminn en kom þó hingað til Íslands frekar seint. Hvort það var vegna íhaldsemi hér heima eða einfaldlega vegna þess að við erum nokkuð einangruð er erfitt að segja.

Þar sem colobus-apinn er á CITES lista er nánast útilokað að fá hann í dag og menn hafa brugðið á það ráð að bjóða í kápur og veski sem koma í endursölu á netinu – en verðið er mjög hátt og margir um hituna. Oftast var notuð geit í yfirvænginn og undirvængur hefur breyst með tíða og tíma þannig þróaðist flugan áfram í það sem við þekkjum hana í dag.

Sun Ray Shadow hefur í gegnum tíðina verið hnýtt í fjölmörgum útgáfum og litafbrigðum. Þar má nefna undirvængi úr ísbirni og Norðmenn hafa verið duglegir við að hnýta hana í ýmsum litum: gulum, bláum, grænum, appelsínugulum, rauðum og hvítum.

Fyrir mörgum árum kom Per Stadigh fram með flugu sem fékk nafnið Swedish Poacher þegar hann var að veiða á vatnasvæði Kharlovka í Rússlandi. Það voru leiðsögumennirnir sem gáfu henni nafnið og hún varð fljótt ein af aðalflugunum til laxveiða í Evrópu.

Hann notaði UNI-stretch, annaðhvort rautt eða chartreuse (eiturgænt), sem brodd. Vængurinn var hafður langur og nettur með regnbogalituðu flashabou.

Swedish Poacher

Áskrift að klúbbnum

Skráðu þig í Demantaklúbb Ertu að fá’ann.

Aðgangur að sérstöku efni, hugmyndafræði og beinni tengingu við miðilinn.

Enginn hávaði – bara gæði.

Lífið er veiði

Vinsamlega bíddu..

Velkominn í Demantaklúbbinn.

Þú færð tölvupóst innan skamms með næstu skrefum.