Unnið er hörðum höndum við að koma upp síðunni Íslenskar flugur og er markmiðið að þar verður heildarsafn íslenskra flugna. Sumar er þekktar aðrar ekki og svo mun með tíða og tíma koma inn flugur eftir gömlu meistaranna Kristján Gíslason, Pétur Steingrímsson ( Pétur í Nesi) og Þórð Pétursson ( Dodda Mink).
Það verður heildarsafn af góðum flugum með mynd og uppskríft að hverri og einni og þetta verður ekki byggt á einni nóttu og mun þetta verkefni taka einhvern tíma. Þetta er svona eilífðar verkefni því það bætist alltaf í flóru Íslenskrar flugna og er það gaman að svo sé.



Ef einhverjir lesendur lumma á einhverri flugu sem þeir eiga og eru tilbúnir að deila þá endilega hafði samband við mig
834-4434
Ég vona að lesendur hafi gaman að þessu framtaki mínu og að það komi til með að nýttast þeim bæði í hnýtingum og í almennum umræðum um flugur.
Hægt er að skoða síðuna með því að smella á Flugur í tækjastikunni að ofan