Fox Fly – íslensk laxafluga

Fox Fly

Þetta er mjög öflug fluga og ein af mínum uppáhalds. Hún hefur reynst mér vel, sérstaklega þegar farið er að húma að kveldi. Fox Fly er líka öflug dimmviðrisfluga, einkum þegar hún er með djúprauðum broddi. Einnig er hægt að nota gult floss í broddinn og þá hentar hún betur í bjartara veðri. Þetta er fluga sem gott er að hafa í boxinu, sérstaklega ef veiða á í Laxá í Aðaldal.

Uppskrift

Öngull: Svartur

Þráður: Svartur

Broddur: Ávalt small silfur með djúprauðu flossi

Skott: Ein hausfjöður af gullfasana

Liðir: Svartur strútur

Vöf: Oval medium silfur

Búkur: Svart floss

Skegg: Svört hæna

Vængur: Amerískur grár refur

Haus: Svartur

Höfundur: Þórður Pétursson (Doddi Minkur)

Sjá fleiri íslenskar laxaflugur

Opna íslenskar flugur