Þeir sem opnuðu Laxárdalinn eru í góðum málum veiðin fín og fiskarnir flottir. Ekki verður annað sagt að veðurguðirnir eru deila gæðum sínum miss jafnt á svæðin á meðan það var hvít jörð í Mývatnssveitina þá var fínasta veður niðri í Laxárdal. 8 til 10 kílómetra fjarlægð milli svæða þannig getur veðráttan verið.


Fiskarnir sem eru að veiðast eru á bilinu 60 cm til 70 cm og hefur að svo komnu máli komið einn fiskur sem er 70+ cm. Fiskarnir er misvel haldnir og fer það eftir svæðum hversu vel þeir eru haldnir.



Veiðistaðurinn Slæðan hefur gefið best að svo komnu máli og flugurnar sem hafa verið að gefa eru Rektor, Black Ghost og Grey Ghost í straumflugum, púpurnar sem hafa gefið mest eru Pheasant Tail, Holan og Vorpúpan.
<