Undanfarið hefur skrifstofa SVFR farið yfir þær umsóknir sem bárust félaginu og er ferlið á lokametrunum og búið er að afgreiða flest ársvæði. Stefnt er að því að klára úthlutunina fyrir næstu mánaðarmót.
Eins og við var að búast bárust fleiri en ein, og fleiri en tvær, umsóknir í eftirsóttustu dagana í flestum ársvæðum félagsins. Úthlutunarreglur eru flokkaðar eftir styrkleika, því fleiri A- umsóknir sem liggja að baki hverja umsókn, þeim mun sterkari er hún og meiri líkur á að slík umsókn fái úthlutun. Þegar í ljós kemur að tvær eða fleiri jafnsterkar umsóknir sækja um sömu dagsetningar þá þarf að grípa til útdráttar, það er að segja ef hvorugur aðilinn sveigjanlegur til að breyta umsókn sinni þá er gripið til úrdráttar líkt og reglur SVFR kveða á um.

Undanfarna daga hafa þó nokkrir félagsmenn gert sér ferð á uppá skrifstofu félagsins til að taka þátt í útdrætti vegna umsóknar sinnar.
Að sögn Ingimundar framkvæmdastjóra SVFR bárust 2400 umsóknir á forúthlutun til SVFR og þar af voru úmsóknir í Elliðaárnar 1557, ógildar umsóknir voru 75 þannig að það voru 1482 umsóknir í 760 hálfa stangardaga í Elliðaánum. Þannig að umfram eftirspurnin í Elliðaárnar var því 95% miðað við mögulegt framboð