Hér eru teknar fyrir mínar svona tvær öflugustu flugurnar Haugur og Gull Haugur, en er verið að læra á tæknina og þetta er allt að koma og bara gaman að þessu.
Markmiðið er að vera með eitt myndband í viku og það getur verið allskonar, hnýtingar veiði- og hnýtingarspjall eða hreinlega einhverjar hugrenningar um málefni líðandi stundar og það er verið að þróa þetta svona áfram. Við verðum bara að sjá hvert framtíðin ber okkur í þessum efnum og það er bara gaman því lífið er veiði.