Hvert er eignarhaldið á The Fly Emporium?

Við leit í opinberri fyrirtækjaskrá Companies House í Bretlandi kemur í ljós hver á fyrirtækið og eru þessar upplýsingar opinbera. Það kom einnig berlega í ljós á BFFI sýningunni að einhverjar hreyfingar hefðu átt sér stað. The Fly Emporium var orðinn einn stærsti styrktaraðili sýningarinnar sem Veniard hefur verið frá upphafi. Ertu að fá´ann heyrði í nokkrum sem voru á sýninguna og þeir upplýstu okkur um þetta þannig að þetta er eftir áreiðanlegum heimildum og einnig fengnar upplýsingar af vef Companies House í Bretlandi

Opinber skráning á félaginu er eftirfarandi :

Nafn og staða félagsins

  • Nafn: The Fly Emporium UK Ltd
  • Skráningarnúmer: 16914695
  • Skráð í Bretlandi
  • Virkt félag (Active)
  • Skráð 16. desember 2025  
Mynd fengin af FB, BFFI
Heimasíða í smíðum
Hreyfing í alþjóðlegum fluguhnýtingamarkaði – vísbendingar um uppbyggingu nýrrar samstæðu

Stjórnarmenn (Officers)

Þessir eru skráðir sem stjórnarmenn hjá félaginu:

  • Rudolf Walter Lamprecht – Director (Swiss) eigandi Heiðarvatns og Vatnsá
  • Wei Chong Lim – Director (Singaporean) Óþekktur
  • Philip Alexander Varney – Director (British) Fyrverandi starfsmaður Veniards  

Þetta sýnir hverjir eru formlega í stjórn félagsins og koma beint úr þeim gögnum sem birt eru á Companies House.

🧑‍💼 Persons with Significant Control (PSC)

Opinber skráning um „Persons with Significant Control“ (aðilar með veruleg áhrif/hlut):

Mr. Rudolf Walter Lamprecht er skráður sem PSC með eftirfarandi skilyrði:

  • Ownership of shares – 75% eða meira
  • Ownership of voting rights – 75% eða meira
  • Right to appoint or remove directors

Þetta þýðir að hann hefur formlega stjórnarvald og meirihlutaeigendurétt sem er opinberlega skráður hjá Companies House. 

Hér er hægt að sjá hvað The Fly Emporium hefur uppá að bjóða með því að smella á myndin

Mynd tekin af ADH fishing

Heimildir

  • Companies House  – UK company register
  • BFFI – British Fly Fair International

Áskrift að klúbbnum

Skráðu þig í Demantaklúbb Ertu að fá’ann.

Aðgangur að sérstöku efni, hugmyndafræði og beinni tengingu við miðilinn.

Enginn hávaði – bara gæði.

Lífið er veiði

Vinsamlega bíddu..

Velkominn í Demantaklúbbinn.

Þú færð tölvupóst innan skamms með næstu skrefum.