Metallica

Metallica – íslensk laxafluga

Metallica

Metallica hefur gefið mér marga laxa og er hreint stórkostleg fluga. Nafnið á henni varð til á skemmtilegan hátt. Eitt sinn kom maður til Péturs að kaupa flugu og leist vel á tiltekna flugu. Hann spurði Pétur hvað hún héti. Pétur horfði á manninn og sá að hann var í bol með mynd af hljómsveitinni Metallica. Þá svaraði hann einfaldlega: „Hún heitir Metallica.“ Maðurinn keypti nokkrar flugur – og nafnið var komið.

Einu sinni var ég að leiðsegja í Hafralónsá, við Tungusel (nr. 15). Við höfðum farið tvisvar yfir hylinn án þess að neitt gerðist. Þá bað veiðimaðurinn mig um að taka stöngina, þar sem hann var orðinn þreyttur.

Ég byrjaði og þegar ég var rétt kominn niður með hylnum, tók vænn fiskur fluguna. Þetta var Metallica nr. 14 á silungatvíkrækju, hnýtt af Pétri Steingrímssyni. Takan var grimm og fiskurinn mældist 85 cm – fallegur hængur.

Eftir þetta hefur þessi fluga verið í miklu uppáhaldi hjá mér og er alltaf í boxinu. Ég gríp til hennar þegar mér finnst tíminn vera réttur.

Það sem gerir Metallica sérstaka er hversu fjölhæf hún er. Hægt er að veiða með hana allt tímabilið og auðvelt er að aðlaga hana að aðstæðum. Það eina sem þarf að gera er að breyta litnum í flossinu – til dæmis bláum, gulum eða appelsínugulum – og þá verður hún að öflugri haustflugu.

Uppskrift

Öngull: Að eigin vali

Þráður: Svartur

Broddur: Flatt silfur með Glo Brite (frekar langt)

Búkur: Flatt silfur

Skegg: Blá hæna

Vængur: Svartur hestur eða annað stíft efni, með nokkrum silfur kristalþráðum

Haus: Svartur með einum eða tveimur vafningum af grænu englahári

Höfundur: Pétur Steingrímsson

Sjá fleiri íslenskar laxaflugur

Opna íslenskar flugur