Sýnd verður kvikmyndin Laxaþjóð | A Salmon Nation eftir Patagonia Films, miðvikudaur 29. apríl kl. 19-22 í Bíó Paradís
Myndin beinir sjónum að íslenskum fjörðum, ám og samfélögum á Íslandi sem þeim tengjast. Í myndinni er varpað ljósi á hvernig laxeldi í opnum sjókvíum hefur áhrif bæði á umhverfið og fólkið sem tengist þessum vatnasvæðum.
Að sýningu lokinni fer fram pallborðsumræða með þátttöku íslenskra félagasamtaka, þar á meðal Landverndar og Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF) auk annarra aðila sem starfa á sviði náttúruverndar og stefnumótunar.

Þátttakendur munu deila hugmyndum sínum um frumvarp um lagareldi sem nú er til meðferðar hjá Alþingi.
Kvöldið er hugsað sem opinn og uppbyggilegur vettvangur til samtals og tækifæri til að heyra beint frá almenningi, hlusta á reynslu fólks víðs vegar af landinu og kanna hvernig stefnumótun getur endurspeglað bæði umhyggju fyrir náttúrunni og framtíðarþarfir samfélaga á landsbyggðinni.
Fjölbreytt vatnasvæði Íslands eru uppspretta sjálfsmyndar og lífsviðurværis fjölmargra samfélaga. Þessi samkoma er tækifæri til að staldra við, heyra ólík sjónarmið og halda áfram að móta framtíð sem endurspeglar þau gildi sem við deilum.
Mikilvægt er að skrá sig á viðburðinn og það er gert HÉR
Eins og þeir segja sem eru að halda þennan viðburð þá hvetja þeir alla þá sem hafa áhuga og brenna fyrir þetta málefni
“Það væri okkur heiður að þið myndu þiggja boð um mætingu á þennan viðburð og við óskum eftir svörum um mætingu sem allra fyrst, sjá skráningarhlekk hér að ofan.
Og endilega breiðið þennan boðskap út með því að áframsenda þessi skilaboð á þá sem þið teljið að vilji mæta á þennan viðburð og endilega póstið meðfylgjandi veiðhengjum á ykkar miðlum (http, fb, ig osfrv.)
Með vinsemd og virðingu,
f.h. Patagonia, Landverndar, NASF, Vá! félags um vernd fjarðar, Íslenska náttúruverndarsjóðsins …”
Hér að neðan má sjá stiklu úr myndinn Laxaþjóð/ Salmon nation
Haltu áfram að lesa
Meira efni um veiði, flugur og íslenskar aðstæður.
Lífið er veiði.
Samstarfsaðilar





