Ráðamenn hissa

Bæði ráðherra Avinnurráðuneytisins og forseti Alþingis hafa lýst yfir undrun á því að erlent stórfyritæki hafi kvatt fólk til að skila inn umsögn um drögin sem sett voru í samráðsgáttina 22.12.2025 um lagareldi. Forseti Alþingis sagði í kvöldfréttum RÚV að það væru kjörnir fulltrúar á þingi sem réður örlögum auðlinda Íslands. Því fer víðs fjarri að svo sé kjörnir fulltrúar á Alþingi eiga að starfa í umboði kjósenda sinna. Ekki að starfa í umboði sérhagsmunaaðila, þeim bera að vernda landsins gang og gæði og því lenda þau úti í horni með svona illa unnið frumvarp. Umhverfismál er ekki einkamál Íslendinga og sérstaklega ekki þegar kemur að því að minnka lífslíkur stofns eins og Atlantshafs laxins, sem þegar er kominn á VÁLISTA sem tegund sem er í útrýmingarhættu. Þetta er ekki í samræmi við við stefnu Viðreisnar en þar segir orðrétt Viðreisn vill að hver kynslóð skili umhverfi sínu og endurnýjanlegum auðlindum í sama eða betra horfi til komandi kynslóða.

Ekki er að sjá að bæði forseti Alþings eða atvinnumálaráðherra ætli sér að starfa í samræmi við opinber stefnumál Viðreisnar. Ekki verður heldur séð að ef þessi drög að lögum ef þau verða samþykkt óbreytt hvernig Viðreisn ætli að skila náttúru Íslands í sama eða betra horfi til komandi skynslóða

Eru drögin í þessum anda nei alls ekki til dæmis er eitt ákvæði sem stingur í stúf og það er „Rekstrarleyfishafi skal greiða árlegt umhverfisgjald vegna affalla í sjókvíaeldi.“. Hvað þýðir svona ákvæðið segir beinlínis.  Jú dýraníð er leyft ef borgað er sanngjarnt gjald fyrir það.

Hvað eiga þær við með því að bæði forseti Alþingis og atvinnumála ráðherrann hugnist það ekki að erlendir aðilar séu að hvetja til að senda inn umsagnir um drögin og benda á Bandaríska stórfyrortækið Patagonia í því sambandi, þær gleyma því hvert er markmið Patagonia í dag.

Patagonia er og verður leiðandi í sjálfbærni. Þau stofnuðu samtökin “1% for the Planet” ásamt Craig Mathews, þar sem fyrirtæki skuldbinda sig til að gefa 1% af veltu sinni til umhverfismála.

Þessi samtök hafa safnað milljörðum til náttúruverndar og hefur féð runnið til ýmisa verkefna er varðar umhverfisvernd t.d hafa samtökin  barist gegn olíuborunum, stutt verndun skóga í Chile, barist fyrir laxinum í Alaska og beitt sér fyrir verndun vatnsfalla, sem og stutt ötullega við baráttu gegn opnu sjókvíareldi á Íslandi, og sem dæmi studdu þau við gerð myndarinnar “Árnar þagna” eftir Óskar Páll Sveinsson sem var frumsýnd á haustdögum 2024 og þar var farið í gegnum það sem  gerðist í Noregi 2024 þegar flestar ár voru lokaðar fyrir veiði vegna ástands og slysasleppingum frá Norskum eldis fyrirtækjum og lætur sig varða öll náttúrumál þar sem gengið er á rétt náttúrunnar. 

Yvon við veiðar
Yvon Chouinard

Árið 2022 ákvað Yvon Chouinard að gefa frá sér fyrirtæki sitt Patagonia sagði hann „Í stað þess að setja fyrirtækið á markað, erum við að gefa það til jarðarinnar. Við erum að nota hagnaðinn til að verja náttúruna.“ Öll hlutabréfin voru sett í sérstakan sjóð. Hagnaðurinn rennur nú óhindrað í baráttuna gegn loftslagsbreytingum og náttúruvernd.

 Yvon Chouinard sagði einfaldlega:

„Earth is now our only shareholder.“ sem mætti þýða “Jörðin er núna okkar eini hluthafi” sem segir allt sem segja þarf. Það er það sem verið er að berjast við jörðina sjálfa

Áskrift að klúbbnum

Skráðu þig í Demantaklúbb Ertu að fá’ann.

Aðgangur að sérstöku efni, hugmyndafræði og beinni tengingu við miðilinn.

Enginn hávaði – bara gæði.

Lífið er veiði

Vinsamlega bíddu..

Velkominn í Demantaklúbbinn.

Þú færð tölvupóst innan skamms með næstu skrefum.