Skipta um flugu

Hvenær og hversu oft á að skipta um flugu?

Ég hef oft verið spurður hvenær og hversu oft ég skipti um flugu.

Svarið er einfalt:

Þú tekur aldrei flugu af sem hefur gefið.

(You never take a winner off.)

Ef fengist hefur fiskur á ákveðna flugu er engin ástæða til að skipta henni út. Farðu aftur yfir hylinn með sömu flugu og byrjaðu alltaf á henni þegar farið er í nýjan hyl.

Ef ekkert gerist og hylurinn heldur þó nokkuð af fiski, þá er gott að skipta um flugu eftir 10–15 köst. Það er regla sem ég hef tamið mér.

Rökin eru einföld:

Ef fiskur tekur ekki ofar í hylnum á ákveðna flugu, hví ætti fiskur sem er neðar hylnum að taka sömu flugu

— Haugur

Ráð Haugsins er í boði

Áskrift að klúbbnum

Skráðu þig í Demantaklúbb Ertu að fá’ann.

Aðgangur að sérstöku efni, hugmyndafræði og beinni tengingu við miðilinn.

Enginn hávaði – bara gæði.

Lífið er veiði

Vinsamlega bíddu..

Velkominn í Demantaklúbbinn.

Þú færð tölvupóst innan skamms með næstu skrefum.