STAFRÆNT FÉLAGASKÍRTEINI SVFR 2026

Síðastliðinn sunnudag var stafrænt félagsskírteini fyrir árið 2026 sent á alla félagsmanna SVFR sem hafa greitt félagsgjaldið í ár, og eru með gilt netfang skráð á Mínum síðum á svfr.is.

Pósturinn var sendur frá netfanginu smartsolutions.is, í nafni SVFR.

Hægt er að vista félagsskírteinið í Apple Wallet ef viðkomandi er með  iPhone eða í Google Wallet í Android-snjallsíma.

Vegna öryggisstillinga í tölvupósti vill SVFR benda á að það getur gerst að skilaboðin  lendi í ruslpóstmöppu (e. Junk). Því biður SVFR  félagsmenn sína að   að athuga ruslpóstinn ef pósturinn finnst ekki í innhólfi félagsmanna.

Fyrir utan að vera aðgengilegt og snyrtilegt í símanum vil SVFR benda félagsmönnum á að félagsskírteinið veitir afslætti hjá samstarfsaðilum SVFR. Yfirlit yfir samstarfsaðila og afsláttarkjör félagsmanna má finna í hlekknum hér að ofan

Áskrift að klúbbnum

Skráðu þig í Demantaklúbb Ertu að fá’ann.

Aðgangur að sérstöku efni, hugmyndafræði og beinni tengingu við miðilinn.

Enginn hávaði – bara gæði.

Lífið er veiði

Vinsamlega bíddu..

Velkominn í Demantaklúbbinn.

Þú færð tölvupóst innan skamms með næstu skrefum.