Veiðin í Tungulæk er í topp gír – aðeins hálfur mánuður liðinn og þegar komnir 597 sjóbirtingar á land. Er það 32% aukning frá fyrra ári, 97% hefur verið sleppt.
Hollið sem er við veiðar núna eru í top málum mikið af fiski og mikið stuð á bakkanum en þeir sem eru við veiðar þar núna eru Höskuldur Birkir Erlingsson ( Hösski Lögga) og félagar.

Það sem er áhugavert er að flugan Green Dum er kominn með 35,9 % af heildarveiðinn sem er hreint ótrúlegt hlutfall.





Aflahæstu flugur
- Green Dumm – 214 fiskar
- Mýsla – 46 fiskar
- Bleik og blá – 33 fiskar
- Krókurinn – 30 fiskar
- Beikir – 28 fiskar
Bestu hylir
- Holan – 346 fiskar
- Eykon – 89 fiskar
- Eyrarhylur – 51 fiskar
- Faxi – 32 fiskar
- Réttarhylur – 31 fiskar
Stærstu fiskar
- 95 cm / 8.8 kg – Holan – Dumm special
- 88 cm / 7.1 kg – Bakki – Green dum
- 87 cm / 6.9 kg – Eykon – Black Ghost
- 85 cm / 6.4 kg – Eykon – Green Dumm
- 84 cm / 6.2 kg – Holan – Green Dumm
Tungulækur í gír
Stuð við bakkan
Skoðaðu íslenskar flugur
Í safninu finnur þú íslenskar laxaflugur með myndum, uppskriftum og reynslu úr veiði. Flugur eins og Haugur míkró hafa sannað sig við erfiðar aðstæður og eiga alltaf heima í boxinu.
Opna flugusafnið →