Veiðiskólinn tekur til starfa

Þrír félaga stofna Veiðiskólan en að að eru þeir Bjarki Már Jóhannneson, Jóhannes Hinriksson og Reynir Friðriksson og er markmið skólans að kenna veiðimönnum sem vill auka við þekkingu sína í veið. Munu þeir félagar bjóða uppá kastkennslu bæði á einhendur og tvíhendur. Fara yfir grunnþekkingu í veiði svo sem lestur vatns, græjur, fatnað og flugur og margt annað verður í boði Veiðskólan

Eins og þeir félagar kynna sjálfan sig á Facebook síðu Veiðiskóla er eftirfarandi 

Bjarki Már Jóhannsson er reynslumikill leiðsögumaður með yfir 20 ára starf að baki við margar af þekktustu laxveiðiám landsins. Hann er líffræðingur að mennt og sameinar fræðilega þekkingu og víðtæka reynslu á einstakan hátt í kennslu sinni.

Bjarki mun kenna bæði fluguhnýtingar og fluguköst. Hann hefur sérhæft sig í klassískum flugum, en kennir bæði byrjendum og lengra komnum hnýturum. Hvort sem þú ert að taka þín fyrstu skref í hnýtingum eða vilt fínpússa tækni þá getur Bjarki aðstoðað þig.

Jóhannes hefur starfað við stangveiði meira og minna í tæpa þrjá áratugi. Öll árin sem leiðsögumaður á sumrin, aðalega við laxveiðar en einnig silungsveiðar. Jóhannes hefur einnig tekið þátt í að leigja og reka lax og silungsveiði ár um langt skeið. Skipulagt veiðiferðir fyrir einstaklinga/hópa bæði á Íslandi og erlendis t.d. til Noregs, Skotlands, Írlands og Jólaeyja.

Reynir hefur starfað sem leiðsögumaður í tæp 30 ár og er jafnvígur bæði í lax og silungsveiði og hefur hann meðal annars leiðsagt í mörgum helstu lax og silungssvæðum hér á landi ásamt því að fara með hópa til Grænlands.  Reynir er sjávarútvegsfræðingur að mennt og hefur síðustu ár verið einn af aðal kennurum við nám Ferðamálaskólans í veiðileiðsögn. Undanfarin 20 ár hefur Reynir kennt köst bæði á einhendu og tvíhendu jafnt fyrir byrjendur og lengra komna. Hægt er að hafa samband hér við Veiðiskólan og skrá sig á námskeið hjá þeim

Áskrift að klúbbnum

Skráðu þig í Demantaklúbb Ertu að fá’ann.

Aðgangur að sérstöku efni, hugmyndafræði og beinni tengingu við miðilinn.

Enginn hávaði – bara gæði.

Lífið er veiði

Vinsamlega bíddu..

Velkominn í Demantaklúbbinn.

Þú færð tölvupóst innan skamms með næstu skrefum.