
Auðvitað verður fyrsta flugan í Fluguspjallinu Haugur.
Haugurinn varð til 1999 og var opinberaður árið 2000. Haugurinn var fyrst hannaður sem gárutúba og flugan koma seinna. Uppskriftin að honum er einföld í sjálfum sér. Persónulega finnst mér hann flottastur á svörtum krók (black ekki black nickle) og svo er hann flottur á bæði gull og silfur króka.
- Uppskrift
- Þráður: Fire Orange
- Búrkur: Pearl floss
- Skegg: Kóngablá hæna
- Vængur: Svört hár með tveimur Electric blue krystals þráðum
- Haus: Fire Orange



Þetta er án efa einhver öflugasta smá flugan sem er til og er ég mjög stoltur af þessari flugu.