Undirbúningurinn á fullu

Ertu að fá´ann sló á þráðinn til José R. Alvarado og heyrði í honum hvernig honum gengi við að undirbúa sig fyrir komandi vertíð því það eru ekki nema nokkrir dagar í að vertíðin byrji. Hann var frekar sprækur og sagðist sitja við hnýtingar í augnablikinu og það væri kominn frekar mikil spenna í hann. José fer í sinn fyrsta túr 10. apríl og þá er um að gera að vera vera vel klifjaður af þeim flugum sem hafa gefið honum hvað bestu veiðina því ekki þarf að finna upp hjólið. Myndirnar sem fylgja þessari frétt eru flugurnar sem José hefur verið að hnýta undanfarið

Haugur CDC
Pheasant tail afbrigði
Úr smiðju José

Hann sagðist ætla að fara víða að veiða í sumar en hversu mikið það verður verður tíminn að leiða í ljós vegna anna í vinnu og svoleiðis, en það kemur allt í ljós hversu mikið hann kemur til með að veiða. José hnýtir flestar sínar flugur á Hanak öngla og notar hann kúlurnar frá þeim.

Hefur honum gengi mjög vel með þær flugur sem hann hnýtir sjálfur og sérstaklega púpu afbrigði af Haug CDC sem gaf honum firrna góða veiði síðastliðið sumar hann sagði að hún hefði gefið honum 70 fiska minnstur var 50 cm og sá stærsti var 80 cm. Haugur CDC hefði gefið lax, bleikur og sjóbirting.

Haugur CDC á stöng
Ungur nemur,gamall temur
Falleg Bleikja
Smátt er það
Falleg hnýting
Flott Bleikja

Það verður spennandi að fylgjast með veiðisumrinu hjá José og sjá hvort þessar flugur halda áfram að skila jafn góðum árangri og síðasta sumar.

Samstarfsaðilar

Áskrift að klúbbnum

Skráðu þig í Demantaklúbb Ertu að fá’ann.

Aðgangur að sérstöku efni, hugmyndafræði og beinni tengingu við miðilinn.

Enginn hávaði – bara gæði.

Lífið er veiði

Vinsamlega bíddu..

Velkominn í Demantaklúbbinn.

Þú færð tölvupóst innan skamms með næstu skrefum.