Það er alltaf gaman þegar við fréttum af því að einhverjir íslendingar og er það enn betra þegar það er einhver sem við þekkjum sem leggur land undir fót og fer í langt ferðalag.
Hilmar Hansson ( Hilli) fór í eitt slíkt ferðalag um miðja febrúar og lá leið hans niður til Agentínu nánar tiltekið til Rio Grande og var hann ásamt félaga sínum Håkan Nordling við veiðar þar í eina viku í Howen Logde. Ferðalagið er langt en þess virði að leggja í það og getur veiðin verið góð en er alltaf skemmtileg og því er lagt á sig þetta ferðalag.
Hilli byrjaði fyrst á því að fljúga til Frankfürt og síðan með flug til Buenos Aires þar sem hann stopaði í tvo daga áður en haldið var afstað en lengra suður á bógi. Flugurvöllur var lokaður í Rio Grande þannig að það þurfti að lenda á öðurm flugvelli sem kostaði 4 tíma akstur tilbaka en eins og Hilli sagði var það upplifun að fara þá leið.



Ferðalag sem þetta býr til minningar og verða þær nægjar eins og Hilli sagði þá er aðbúnaðurinn í veiðihúsinu til fyrirmyndar og maturinn er hreint frábær. Veiðin þetta árið var í lagi einn til tveir fiskar á dag en hefur þó verið meira undanfarin ár.



Veiðin getur verið erfið vegna þess að það er alltaf vindur ( rok) og það er í raun það eina sem getur aftrað mönnum og sérsaklega ef þeir eru ekki góðir kastarar og svo erum um að gera að vera kappklæddur við ánna



Eru rosalega fallegir fiskarnir þarna og stærsti fiskur Hilla í túrnum var 8 kg fiskur og tók hann litla Ossu græn á hraða strippi veit á íslenska mátan



Eins og myndirnar sýna þá er þetta allt til fyrirmyndar og veiðin í lagi og ekki skemmir félagsskapurinn fyrir að sögn Hilla þá er þetta ein partur af hans lífi og þetta snýst um að njóta og slaka á.



Til stendur að fá hóp Íslendinga og skella sér niður til Argentínu 2027 og verður unnið að því næstu mánuði og verður það tilkynnt sérstaklega þegar línur fara að skýrast
Mest lesið
Samstarfsaðilar





