Taumar

Taumar eru trúarbrögð – hér er það sem virkar fyrir mig.

Hér er einn sem er að spyrja um hvaða tauma ég nota. Ég er kominn inn á ákveðið sprengjusvæði og það sem ég á við með því er að taumar eru trúarbrögð. Það sem mér finnst veiðisexy þarf öðrum að finnast ömurlegt.

Hins vegar hefur reynslan kennt mér það að gott er að nota mismunandi tauma og hjá mér eru taumar trúarbrögð. Það sem hefur reynst mér vel í gegnum tíðina – af hverju ætti ég að breyta því sem mér finnst gott og hefur reynst mér vel?

Í kónískum taumum nota ég bara eina tegund: 15 feta fyrir tvíhenduna og 12 feta fyrir einhenduna og það eru taumar frá Guideline Power Strike og hafa þeir reynst mér vel. Einnig nota ég Power Strike tauma frá þeim og á ég alltaf nokkrar spólur frá þeim og fer eftir því hvar ég er að veiða.

Power Strike
Kónískur taumur
Maxima

Svo er það gamli góði Maxima og þá sérstaklega brúni og hann nota ég þar sem er mjög grýttur botn og mín skoðun er sú að þetta er einn besti taumurinn við þessar aðstæður, þ.e.a.s. grýttur botn. Hef ég dregið fisk fyrir stein með þessum taum.

Þetta er mín skoðun og svo geta aðrir haft aðra skoðun því þetta eru jú trúarbrögð og hver þykir sitt val best.

Til að árétta og fyrirbyggja allan misskilning þá eru þetta taumar sem ég nota og ég er ekki að bera brigslur á önnur vörumerki því ég þekki þau ekki og ef ég þekki þau þá hef ég ekki góða reynslu af viðkomandi vörumerki. Því að breyta því sem er gott?

Svo hafa veiðimenn alltaf val og velja það sem þeir vilja og kunna vel við og er allt gott um það að segja.

kv

Sigurður Héðinn

Fleiri ráð frá Haugi

Lærðu meira – smáatriðin skipta máli

Áskrift að klúbbnum

Skráðu þig í Demantaklúbb Ertu að fá’ann.

Aðgangur að sérstöku efni, hugmyndafræði og beinni tengingu við miðilinn.

Enginn hávaði – bara gæði.

Lífið er veiði

Vinsamlega bíddu..

Velkominn í Demantaklúbbinn.

Þú færð tölvupóst innan skamms með næstu skrefum.