Loftbólur

Mikilvægt er að ganga þannig frá gárutúbunni eða einkrækjunni að það sé 100% öruggt að þær myndi ekki loftbólur á eftir sér, því að þegar það gerist er það nánast öruggt að þær muni ekki skila neinni veiði. Til að tryggja að þetta gerist ekki er flugunni kastað stutt út, t.d. bara taumunum, og gáran … Lesa meira

Ertu klár fyrir sumarið?

Stangir Nú líður að vertíð og þá er um að gera að fara yfir græjurnar sínar, vera tilbúinn og ekki vera á síðustu stundu að gera allt í hendingskasti. Fara yfir stangirnar og ef það á að kaupa nýja stöng, byrja strax að huga að því hvað á að kaupa og hvað er á óskalistanum. … Lesa meira

Að veiða í lituðu vatni

Að veiða í lituðu vatni getur verið hin besta skemmtun, það er að segja þegar árnar eru að hreinsa sig eftir að hafa farið í kakó. Það eina sem þarf að hafa í huga er að þá hafa tökustaðirnir færst til, annaðhvort mun ofar eða neðar, og fer það eftir aðstæðum hvert þeir færa sig. … Lesa meira

Gullkrókar

– eru þeir málið? Einu hef ég tekið eftir á ferð minni niður árnar og þá sérstaklega síðsumars þegar sól er farin að lækka á lofti, og það er hve gullkrókar virka vel á þessum árstíma. Stundum finnst mér þeir virka betur en aðrir krókar. Nú má búast við því að einhverjir hvái. Getur litur … Lesa meira

MÍKRÓTÚBUR

Míkrótúburnar eru eitt af þessum afbrigðum sem er stórkostlega vanmetið fyrirbæri, því að þær geta verið svo sterkar að það er með ólíkindum. Megan Boyd hefur að öllum líkindum verið fyrsta manneskjan sem kom með slíka flugu á markaðinn fyrir 1940 og gekk hún undir nafninu Megan Boyd túban. Þetta er sama flugan og við … Lesa meira

EINKRÆKJUR

Þegar verið er að hitcha/gára með einkrækjum er mikilvægt að hnýta fluguna á tauminn þannig að hausinn á flugunni snúi gegn straumnum og þá er lykkjunni (hestahnútur) brugðið yfir og fest. Þannig að taumurinn er á þeirri hlið sem snýr að veiðimanninum; leggurinn á flugunni og taumurinn eiga að mynda 90 gráðu horn. Þetta tryggir … Lesa meira

Veiða og sleppa niðurgöngu sjóbirting

Lifa niðurgöngu sjóbirtingar sleppingu af? Þetta er spurning sem margir veiðimenn velta fyrir sér — og svarið er ekki einfalt. Að veiða og sleppa fiski er orðið sjálfsagður hluti af nútíma veiði. En þegar kemur að niðurgöngu sjóbirtingi — niðurgöngufiskum — vaknar spurning: Lifa þeir sleppingu af? Svarið er ekki einfalt. En við vitum nóg … Lesa meira

Taumar

Taumar eru trúarbrögð – hér er það sem virkar fyrir mig. Hér er einn sem er að spyrja um hvaða tauma ég nota. Ég er kominn inn á ákveðið sprengjusvæði og það sem ég á við með því er að taumar eru trúarbrögð. Það sem mér finnst veiðisexy þarf öðrum að finnast ömurlegt. Hins vegar … Lesa meira

Hvaða stöng er best í laxinn?

Fyrirspurn frá einum sem vildi ekki koma fram undir nafni og við virðum það svo sannarlega Ef ég á að vera alveg heiðarlegur þá er staðan í dag þannig að það er ekki eitt vörummerki sem skarar framúr öðru í dag. Er ég þá að tala um stóru vörumerkin Guideline, Loop, Nám, Scott, Sage, Winston, … Lesa meira