– eru þeir málið?

Einu hef ég tekið eftir á ferð minni niður árnar og þá sérstaklega síðsumars þegar sól er farin að lækka á lofti, og það er hve gullkrókar virka vel á þessum árstíma. Stundum finnst mér þeir virka betur en aðrir krókar. Nú má búast við því að einhverjir hvái. Getur litur á krókum virkilega skipt máli? Já, ég tel svo vera og byggi það á eigin veiðireynslu undanfarna áratugi.
Ein er sú fluga sem hefur komið mér á óvart á gullkrók og það er Haugurinn. Ég var ekki sá fyrsti til að hnýta Hauginn á gullkrók, ég get alveg viðurkennt það. Það kom til þannig að hingað til lands kom erlendur veiðimaður, Chris Watson að nafni, og hann hafði fengið hnýtara í Bretlandi til að hnýta Hauginn fyrir sig. Hann átti veiði í Svalbarðsá og þessi fluga skilaði honum fantaveiði. Ég heyrði af þessu og fannst það merkilegt.



Um mitt sumar 2019 kemur svo kunningi minn sem er leigubílstjóri og við erum eitthvað að spjalla og ég spyr svona meira af forvitni en alvöru hvað hann sé að fara að gera. Jú, hann er að fara til Keflavíkur að sækja veiðimann að nafni Chris Watson. Já! segi ég og spyr þá af fullri alvöru hvenær hann þurfi að vera kominn upp á flugvöll, hvort hann hafi tíma til að bíða aðeins því að ég ætli að henda í nokkrar flugur. Jú, jú, hann hefur smátíma og ég rimpa af fjórum Haugum á gullkróka til að gefa Chris. Ég frétti svo að hann hefði gert mjög góða veiði fyrir austan en frekari fréttir fékk ég ekki.

Eftir þetta hef ég hnýtt Gull-Hauginn, eins og ég kalla hann, og hann hefur skilað sínu og þá sérstaklega síðsumars. Hvað það er sem gerir þessa flugu svona sterka veit ég ekki en ég er farinn að trúa því að á þessum árstíma séu gullkrókar málið. Auk Hauksins eru nokkrar flugur sem eiga að vera á gullkrók síðsumars sem hafa líka verið mjög góðar fyrir part vertíðar.
Sterkustu síðsumarsflugurnar eru Hairy Mary, Undertaker og Munro Killer. Að hafa þær á gylltum króki gerir þær enn fallegri og þær fá sterkari karakter. Enn fremur er ein míkrótúba sem verður að vera með gylltum krók og það er túban sem við köllum Black & Blue. Hún er góð alhliða fluga og virkar vel allt sumarið og persónulega finnst mér hún fallegust á gylltum krók.
Tengdar flugur
Flugur eins og Garpur og Gull Haugur hafa sannað sig við íslenskar aðstæður og eiga klárlega heima í boxinu.