Markmiðið með því að gára, eða hitcha, er einfalt: að fá fiskinn upp í yfirborðið til að taka fluguna.
Að mínu mati er þetta skemmtilegasta veiðiaðferðin og án efa sú sem er mest spennandi. Það er eitthvað sérstakt við það að sjá laxinn koma upp, elta fluguna, taka hana eða jafnvel slá í hana með sporðinum áður en hann tekur.
Og eitt er víst – fiskurinn missir nánast aldrei af flugunni þegar hann ákveður sig.
Hvað er það sem gerir þessa aðferð svona árangursríka? Það er erfitt að setja fingur á eitt atriði, en eitt veit ég:
Því einfaldari og léttari sem gárutúban er, því betri verður hún.
Einföld míkrógára er eitt sterkasta vopnið í nýgengnum smálaxi. Og því fínni sem gáran (rákin) er sem hún myndar, því öflugri verður hún.

Regla 1 – Haltu stönginni uppi
Haltu stönginni upp í 45–60 gráður.
Þetta er gert til þess að:
- auka viðnám línunnar við vatnsflötinn
- gera þér auðveldara að stjórna hraða flugunnar
Þetta er kannski mikilvægasta reglan fyrir þá sem eru að byrja að ná tökum á gárunni.
Þegar menn eru orðnir lengra komnir í tækninni er þetta ekki alltaf nauðsynlegt, sérstaklega þegar gárutúburnar eru orðnar svo góðar að þær vinna nánast sjálfar.
Þá snýst þetta meira um:
- að láta reka og vippa ( menda)
- vinna stöðugt í línunni
- halda henni beinni
Hins vegar er oft nauðsynlegt að halda stönginni uppi þegar verið er að nota einkrækjur í gárutækninni, og stundum getur verið erfitt að fá fluguna upp í yfirborðið – sérstaklega með fjaðraflugur.
Best er að nota:
- langa og mjúka tauma
- létta flugu
Þannig tryggirðu að gárutúban sökkvi ekki eða myndi loftbólur þegar hún kafar.
Oft geri ég það sjálfur að lyfta hendinni upp til að lengja stöngina og ná betri stjórn á línunni og flugunni – sérstaklega í einkrækjuveiði.
Stundum nota ég báðar hendur þegar ég er að gára.
Þá:
- er kasthöndin undan straumnum
- og hin höndin notuð til að ná betri stjórn á stönginni
Ég vippa henni frá mér og hægi sem mest á rennsli línunnar yfir hylinn.
Þetta gerir aðferðina árangursríkari, því þú ert að hægja á línunni og þar með fær flugan lengri tíma yfir veiðisvæðinu.
Regla 2 – Kast og stjórn
Kastaðu undir þröngu horni og vippaðu línunni vel gegn straumnum.
Markmiðið er að:
- línan hægi á flugunni
- flugan komi upp í yfirborðið
- og myndi V-laga gáruna
Þú stjórnar hraða flugunnar með:
- stangartoppnum
- stöðugri vinnu í línunni
Því þrengra sem kasthornið er:
þá auðveldara er að stjórna hraðanum
Það er því mikilvægt að ná tökum á reglu 1 til að geta stjórnað þessu.
Stundum er straumurinn svo hægur að flugan kemur ekki upp sjálf.
Þá þarftu að hjálpa henni upp:
- með því að taka í línuna
- þar til hún myndar gáruna
Við slíkar aðstæður þarf oft að kasta aðeins lengra til að koma flugunni á réttan stað í hylnum.
Regla 3 – Línulykkjan
Vera með lykkju, um það bil einn meter af flugulínunni, í hendinni.
Þetta er lykilatriði þegar fiskur tekur.
Þegar laxinn tekur þarf hann svigrúm til að:
- snúa sér
- festa sig
Regla 3 og 4 vinna alltaf saman.
Ég var einu sinni með mann sem missti alla fiska sem hann setti í.
Þetta gekk svona í tvo daga og ég skildi ekki hvað var að gerast, því þetta voru fiskar sem tóku fluguna almennilega.
Svo sá ég loksins hvað var að.
Þegar fiskurinn tók:
- fór hann strax í reipitog
- en engin lína fór af hjólinu
Ég spurði hann hvað hann væri að gera.
Hann sýndi mér að eftir hvert kast hafði hann línuna um þumalfingurinn – og þegar fiskurinn tók hafði hann ekki tíma til að losa hana.
Þá er leikurinn búinn.
Ég kenndi honum að hafa lykkjuna lausa í hendinni.
Eftir það:
allt breyttist.
Regla 4 – Bíða
Bíða. Bíða. Bíða.
Þegar fiskurinn tekur:
Leyfðu honum að taka fluguna alveg
Leyfðu línunni að byrja að renna af hjólinu.
Best er að hafa lykkjuna:
- milli vísifingurs og löngutangar
Þannig fær línan að renna hindrunarlaust.
Það þarf lítið afl í þessum tveimur fingrum til að halda aftur af línunni, og þetta minnkar líkurnar á að rífa fluguna úr fiskinum.
REISA Á STÖNGINNI RÓLEGA
Ekki rífa í hann eins og um silung sé að ræða.
Laxinn þarf:
- að snúa sér
- að komast á sinn legustað
Ég tel stundum upp að þremur áður en ég lyfti stönginni.
Undantekning:
Ef fiskur tekur beint niður af þér:
- þá má bregðast hraðar við
Þá er oftast:
Flugan komin í snoppuna
Ef hann losnar strax:
- þá er það vegna þess að flugan hefur ekki fest sig almennilega
Þá er ekkert annað í stöðunni en að reyna aftur.
Saga af ánni
Ég var einu sinni að leiðsegja ítalskum veiðimanni við Berghylsbrotið í Norðurá.
Þetta var í árdaga gárutúbunnar og ég spurði hann hvort við ættum að prófa hana.
Hann sagði:
👉 „Nei, ég hef prófað þetta í mörg ár og það virkar ekki.“
Ég gafst ekki upp og sagði honum að kasta bara eins og hann væri vanur.
Hann kastaði… flugan lenti í vatninu… og byrjaði að gára.
Hún skaut yfir brotið.
Og þá kom lax.
Og svo annar.
Við lönduðum þremur fiskum á stuttum tíma.
Á leiðinni upp í hús, 15–20 mínútum síðar, var maðurinn svo uppveðraður að hann hrópaði af gleði og sagðist aldrei hafa upplifað annað eins.
Eftir þetta:
vildi hann ekkert annað en gárutúbuna.
Niðurstaða
Gáran er einföld aðferð – en hún krefst:
- stjórnunar
- tilfinningar
- og þolinmæði
Ef þú nærð þessu:
ertu kominn með eitt öflugasta vopn sem til er í laxveiði.
Ráð Haugsins
Haltu þessu einföldu.
Stjórnaðu hraðanum.
Og bíddu.
Þá kemur restin.
Og góða skemmtun og ég vona að þetta verði að gagni