Stangir
Nú líður að vertíð og þá er um að gera að fara yfir græjurnar sínar, vera tilbúinn og ekki vera á síðustu stundu að gera allt í hendingskasti.
Fara yfir stangirnar og ef það á að kaupa nýja stöng, byrja strax að huga að því hvað á að kaupa og hvað er á óskalistanum. Ekki fara í einhver kaup bara til að gera þau.
Yfirfara þær stangir sem fyrir eru og athuga hvort þær séu í lagi, þurrka aðeins af þeim og máta þær. Þetta eykur gleðitilfinninguna og kemur huganum á flug — minningarnar hlaðast inn.
Tékka á hjólum og athuga hvort allt sé í lagi. Skrúfa þau í sundur eða taka spóluna af og þrífa undirsætið. Í leiðinni skoða hvort línurnar séu í lagi, yfirfara þær og skrifa niður hvað þarf að bæta við. Hafa þetta allt á tæru.
Henda öllu gömlu taumefni — þetta er minnsti kostnaðarliðurinn í veiðinni. Það er ekkert meira pirrandi en að slíta í fiski af því að verið var að nota gamalt taumefni.
- Stangir í lagi
- Hjól í lagi
- Línur í lagi
- Búið að henda taumum og kaupa nýja
Vöðlur og annar hlífðarfatnaður
Ekkert er ömurlegra en að uppgötva það á veiðislóð að vöðlurnar leka. TÉKKA á vöðlum og yfirfara þær. Ef menn hafa tök á því er best að snúa þeim við og fylla þær af vatni — ef þær leka kemur það strax í ljós. Sumar veiðibúðir bjóða upp á þá þjónustu að gera við þær, sem er mjög þægilegt og afbragðs þjónusta.
Vöðluskórnir — best er að bleyta þá áður en haldið er í veiði, þannig að þegar komið er í hús eru þeir ekki eins og harðfiskur.
Yfirfara jakka og tæma allt gamalt rusl úr vösum.
- Vöðlur klárar
- Skór í lagi
- Jakki í lagi
Flugur og flugubox
Gefa sér góðan tíma í að yfirfara boxin og henda öllu sem lítur ekki rétt út. Raða eftir stærðum og koma skikki á boxin.
Fara yfir hvað vantar og skreppa í búðirnar eða til hnýtara sem þið treystið.
Gera óskalista yfir það sem vantar og byrja tímanlega að ákveða hvað á að kaupa. Það er ekkert skemmtilegra en að hafa fluguboxin 100%.
- Flugubox í lagi
- Óskalisti tilbúinn
Þetta er svona á þessum nótum sem ég geri þetta — mér finnst þægilegt að hafa þetta svona.
Meira fyrir undirbúninginn
Skoðaðu íslenskar flugur
Í safninu finnur þú íslenskar laxaflugur með myndum, uppskriftum og reynslu úr veiði. Flugur eins og Haugur míkró hafa sannað sig við erfiðar aðstæður og eiga alltaf heima í boxinu.
Opna flugusafnið →