Míkrótúburnar eru eitt af þessum afbrigðum sem er stórkostlega vanmetið fyrirbæri, því að þær geta verið svo sterkar að það er með ólíkindum. Megan Boyd hefur að öllum líkindum verið fyrsta manneskjan sem kom með slíka flugu á markaðinn fyrir 1940 og gekk hún undir nafninu Megan Boyd túban. Þetta er sama flugan og við þekkjum sem Black & Blue míkrótúba. Hún sagði að þessa flugu ætti að nota á björtum og sólríkum dögum þegar vatn væri lítið og nota eins litla silfraða þríkrækju sem frekast væri unnt að nota. Ég verð að taka undir þetta með henni.


Til eru fjölmörg afbrigði af flugum sem búið er að setja í búning míkrótúbunnar. Á síðari árum hefur komið fram á sjónarsviðið ný kynslóð af míkrótúbum og ég verð að segja að þær eru með sterkari vopnum sem við eigum, en þetta eru stálmíkrótúbur. Styrkleiki þeirra felst fyrst og fremst í því að þær fara aðeins undir yfirborðið og inn í strauminn.


Einhverju sinni var ég við leiðsögn í Norðurá og ég og mínir stangir áttum Dalinn. Aðstæður til veiða voru erfiðar, sól, brakandi þurrkur og lítið vatn í ánni. Hins vegar var smá gola sem gerði lífið skaplegra. Önnur stöngin fór upp eftir og ég fór með hina stöngina í Fitjabakka. Einhverra hluta vegna byrjuðum við á því að setja Hairy Mary míkrótúbu undir. Eftir rúman klukkutíma segi ég við mitt fólk hvort við ættum ekki að hringja í hina stöngina því að við vorum komnir með nóg á þessa stöng, búnir að landa 11 löxum á sömu túbuna. Við gerum það og þeir koma eftir smástund og ég lét þá fá sömu flugu og hafði gefið alla laxana. Jæja, við byrjum og þegar það var komið hádegi hafði hin stöngin landað sjö löxum. Þannig að Fitjabakki gaf okkur þennan morgun 18 laxa á sömu míkrótúbuna. Ekki var mikið eftir af henni eftir þessa gjöfulu vakt, einungis nokkur hár og smá skegg.
Er míkró túban lausnin? Já og nei hún er frábær viðbót í boxið og ég hvet alla til að hafa þær í boxunum sínum.
Skoðaðu íslenskar flugur
Í safninu finnur þú íslenskar laxaflugur með myndum, uppskriftum og reynslu úr veiði. Flugur eins og Haugur míkró hafa sannað sig við erfiðar aðstæður og eru nauðsyn í boxinu.
Opna flugusafnið →