Loftbólur

Mikilvægt er að ganga þannig frá gárutúbunni eða einkrækjunni að það sé 100% öruggt að þær myndi ekki loftbólur á eftir sér, því að þegar það gerist er það nánast öruggt að þær muni ekki skila neinni veiði.

Til að tryggja að þetta gerist ekki er flugunni kastað stutt út, t.d. bara taumunum, og gáran skoðuð. Ef hún skilar ekki hreinni gára er eitthvað að. Þá er bara að taka fluguna upp aftur og laga hana og prófa aftur. Það getur verið betra að gera þetta nokkrum sinnum heldur en að fara í gegnum hylinn eða staðinn með einhverju sem mun ekki skila neinu. Lykilatriðið er að vera pollinmóður og gera eins vel og hægt er. Sama er með einkrækjurnar, þær eiga það til að verða ólárar, þannig að gáran verði ekki hrein. Ástæður fyrir óhreinni gára geta verið margvíslegar. Ég forðast af fremsta megni að nota gárutúbur þar sem götin eru beggja vegna á plastinu. Gallinn við þessar túbur er að götin eru svo stór að vatnið getur flætt í gegnum túbuna og við það eitt geta myndast loftbólur eða óreið fyrir aftan hana. Vatnið getur einnig flætt í gegnum sem þyngir hana og dregur hana niður, sem svo gerir það að verkum að hún virkar ekki eins og hún ætti að gera. Önnur orsök getur verið að taumurinn sé of stuttur eða of þungur. Allt þetta getur dregið túbuna inn í strauminn.

Í stuttu máli

  • Loftbólur geta eyðilagt virkni flugunnar.
  • Prófaðu alltaf fluguna stutt áður en þú ferð í gegn um staðinn.
  • Hrein gára segir til um að flugan vinni rétt.
  • Túbur sem hleypa vatni í gegn geta skapað vandamál.
  • Of stuttur eða of þungur taumur getur líka haft áhrif.

Haltu áfram að lesa

Meira efni um veiði, flugur og íslenskar aðstæður.

Lífið er veiði.

Ísland

Áskrift að klúbbnum

Skráðu þig í Demantaklúbb Ertu að fá’ann.

Aðgangur að sérstöku efni, hugmyndafræði og beinni tengingu við miðilinn.

Enginn hávaði – bara gæði.

Lífið er veiði

Vinsamlega bíddu..

Velkominn í Demantaklúbbinn.

Þú færð tölvupóst innan skamms með næstu skrefum.