Landssamband veiðifélaga hélt aðalfund sinn að Laugum í Sælingsdal, Dalabyggð þann 24. Og 25. Apríl síðast liðinn.
Var fundurinn vel sóttur af veiðifélögum um allt land og málefni veiðifélaga krufin til mergj, eins og við var að búast þá var nýtt frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi fyrirferðarmikið á fundinum. Í því samhengi þá ályktaði fundurinn eftirfarandi:
Aðalfundur Landssambands veiðifélaga, haldinn á Laugum í Sælingsdal 24. – 25. apríl 2026, skorar á Alþingi að leggja til hliðar að sinni framlagt frumvarp um lagareldi og leita sátta með öllum hagsmunaaðilum um gerð nýs frumvarps. Þar verði ekki aðeins gætt hagsmuna fiskeldisiðnaðarins heldur verði einnig hugað að umhverfisvernd, vernd villta fiskistofna og atvinnulífi tengdu stangveiði til jafns við það sem tengt er fiskeldi. Lýsir Landssambandið sig reiðubúið til að taka þátt í gerð slíks frumvarps.

Ályktunin var einnig birt á vef sambandsins og er í viðhengi á PDF formi. https://angling.is/alyktun-adalfundar-lv-2026/
Að lokum er rétt að geta þess að ég er alltaf tilbúinn til samtals, viðtals og annað til að ræða umsögn og tillögur Landssambands veiðifélaga (sjá hér og hér) varðandi lagareldisfrumvarpið, eða um öll önnur mál er tengjast villtum laxfiskum, stangveiði og veiðifélögum landsins.
Haltu áfram að lesa
Meira efni um veiði, flugur og íslenskar aðstæður.
Lífið er veiði.
Samstarfsaðilar





