Fishpartner bætir við sig veiðisvæðum

Bjarnarfjarðará er sjóbleikjuá í Bjarnarfirði á Ströndum um 35 km akstur frá Hólmavík. Veiðisvæðið er um 7 km með 25 merktum veiðistöðum. Vatnasvæði árinnar er mjög fallegt og býður upp á fjölbreytt veiðisvæði. Bjarnarfjarðará er eftirsótt sjóbleikjuá og þar veiðast stundum laxar.

Veitt er á fjórar stangir í Bjarnarfjarðará en 2 stangir í efri hlutanum sem kallast Goðdalsá.

Leyfilegt er að veiða á flugu, maðk og spún. Veiðimenn eru beðnir um að gæta hófsemi við veiðar og ekki er ætlast til að drepnar séu fleiri en 3 bleikjur á stöng á dag.

Myndir teknar af vef Fishpartner frá Bjarnadalsá
Myndir teknar af vef Fishpartner frá Goðadalsá

Goðdalsá er efri hluti Bjarnarfjarðár á Ströndum og býður upp á rólega og tæknilega veiði í fallegu og afskekktu umhverfi. Áin er minni og tær, þar sem áherslan er á nákvæmni og að lesa vatnið.

Helsti fiskurinn er bleikja, en hún er stopulari en á neðri svæðum árinnar og veiðin getur verið breytileg. Besti tíminn er yfirleitt frá miðjum júlí og fram í ágúst þegar fiskur hefur gengið upp ánna.

Goðdalsá hentar vel veiðimönnum sem kunna að meta kyrrð og áskorun í smærra vatni

Eins og kemur fram í tilkynningu Fishpartner þá er ekki veiðihús við svæðin en hægt er að kaupa gistingu já eftirtöldum aðilum:

Hótel Laugarhóll,  Svanshóll apartments og  Hvammur Cottages bjóða upp á góða gistingu við árbakkann.  Í Bjarnarfirði er sundlaug, heitur pottur, náttúrulaugar, veitingasala og einnig gott tjaldsvæði.

Haltu áfram að lesa

Meira efni um veiði, flugur og íslenskar aðstæður.

Lífið er veiði.

Ísland

Samstarfsaðilar

Áskrift að klúbbnum

Skráðu þig í Demantaklúbb Ertu að fá’ann.

Aðgangur að sérstöku efni, hugmyndafræði og beinni tengingu við miðilinn.

Enginn hávaði – bara gæði.

Lífið er veiði

Vinsamlega bíddu..

Velkominn í Demantaklúbbinn.

Þú færð tölvupóst innan skamms með næstu skrefum.