Bjarnarfjarðará er sjóbleikjuá í Bjarnarfirði á Ströndum um 35 km akstur frá Hólmavík. Veiðisvæðið er um 7 km með 25 merktum veiðistöðum. Vatnasvæði árinnar er mjög fallegt og býður upp á fjölbreytt veiðisvæði. Bjarnarfjarðará er eftirsótt sjóbleikjuá og þar veiðast stundum laxar.
Veitt er á fjórar stangir í Bjarnarfjarðará en 2 stangir í efri hlutanum sem kallast Goðdalsá.
Leyfilegt er að veiða á flugu, maðk og spún. Veiðimenn eru beðnir um að gæta hófsemi við veiðar og ekki er ætlast til að drepnar séu fleiri en 3 bleikjur á stöng á dag.






Goðdalsá er efri hluti Bjarnarfjarðár á Ströndum og býður upp á rólega og tæknilega veiði í fallegu og afskekktu umhverfi. Áin er minni og tær, þar sem áherslan er á nákvæmni og að lesa vatnið.
Helsti fiskurinn er bleikja, en hún er stopulari en á neðri svæðum árinnar og veiðin getur verið breytileg. Besti tíminn er yfirleitt frá miðjum júlí og fram í ágúst þegar fiskur hefur gengið upp ánna.
Goðdalsá hentar vel veiðimönnum sem kunna að meta kyrrð og áskorun í smærra vatni
Eins og kemur fram í tilkynningu Fishpartner þá er ekki veiðihús við svæðin en hægt er að kaupa gistingu já eftirtöldum aðilum:
. Hótel Laugarhóll, Svanshóll apartments og Hvammur Cottages bjóða upp á góða gistingu við árbakkann. Í Bjarnarfirði er sundlaug, heitur pottur, náttúrulaugar, veitingasala og einnig gott tjaldsvæði.
Haltu áfram að lesa
Meira efni um veiði, flugur og íslenskar aðstæður.
Lífið er veiði.
Samstarfsaðilar





