Hvaða stöng er best í laxinn?

Fyrirspurn frá einum sem vildi ekki koma fram undir nafni og við virðum það svo sannarlega

Ef ég á að vera alveg heiðarlegur þá er staðan í dag þannig að það er ekki eitt vörummerki sem skarar framúr öðru í dag. Er ég þá að tala um stóru vörumerkin Guideline, Loop, Nám, Scott, Sage, Winston, Vision og G-Loomis og svo eru til vörumerki sem að við þekkjum ekki hér á landi. Svo eru auðvitað líka til ódýrari merki sem eru alveg ágætis merki og þjónar sínum tilgangi.

Þetta er líka spurning um að hverskonar stöng ertu að leita að viltu hraða stöng ( fast action) eða mýkri stöng ( middle fast action) þetta fer mjög mikið eftir kaststíl og hvað hentar þér. Svo er það spurning ertu að leita að einhendu eða tvíhendu.

Stangir í rekka

Það sem ég geri er að ég legg mikla áherslu á þegar ég er að kaupa mér stöng að sami framleiðandi sé líka með línu sem hann hefur framleitt sjálfur og kannski er það sérviska í mér, en í mínum huga er þetta lykilatriði. Stöng númer þetta og og lína sem mælt er með svínvirkar það er að segja ef stöng og lína sé frá sama framleiðenda.

Svo er það líka háð veskinu hvað verður fyrir valinu og hver er fyrri reynsla af stöngum og svo er það einu sinni þannig að hver þykir sinn fugl fagur og á þetta við í þessu tilfelli. Hinsvegar myndi ég fara milli verslana og skoða hvað er í boði og gefa mér góðan tíma í þetta og akkúrat núna er kaupendatími og spá vel í hlutunum áður er ráðist er í kaupa á græjum. Fá að prufa og finna fyrir stönginni, finna fyrir henni og sjá hvort hún hentar eður ei.

kv

Siggi Haugur

Áskrift að klúbbnum

Skráðu þig í Demantaklúbb Ertu að fá’ann.

Aðgangur að sérstöku efni, hugmyndafræði og beinni tengingu við miðilinn.

Enginn hávaði – bara gæði.

Lífið er veiði

Vinsamlega bíddu..

Velkominn í Demantaklúbbinn.

Þú færð tölvupóst innan skamms með næstu skrefum.