Fishpartner bætir við sig veiðisvæðum

Bjarnarfjarðará er sjóbleikjuá í Bjarnarfirði á Ströndum um 35 km akstur frá Hólmavík. Veiðisvæðið er um 7 km með 25 merktum veiðistöðum. Vatnasvæði árinnar er mjög fallegt og býður upp á fjölbreytt veiðisvæði. Bjarnarfjarðará er eftirsótt sjóbleikjuá og þar veiðast stundum laxar. Veitt er á fjórar stangir í Bjarnarfjarðará en 2 stangir í efri hlutanum sem kallast Goðdalsá. … Lesa meira

Aðalfundur Landsamband veiðifélaga

Landssamband veiðifélaga hélt aðalfund sinn að Laugum í Sælingsdal, Dalabyggð þann 24. Og 25. Apríl síðast liðinn. Var fundurinn vel sóttur af veiðifélögum um allt land og málefni veiðifélaga krufin til mergj, eins og við var að búast þá var nýtt frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi fyrirferðarmikið á fundinum. Í því samhengi þá ályktaði fundurinn eftirfarandi:  … Lesa meira

Vor í lofti

🎣 Fluguspjallið Mánuður í vertíð — verður spennandi að sjá hvernig þetta fer af stað. Haltu áfram að lesa Meira efni um veiði, flugur og íslenskar aðstæður. 👉 Fleiri fréttir 👉 Íslenskar flugur 👉 Ráð Haugins Lífið er veiði.

Nýtt Ráð Haugsins: Gára (hitch) – hvernig þetta virkar og hvernig þú gerir þetta rétt

Markmiðið með því að gára, eða hitcha, er einfalt: að fá fiskinn upp í yfirborðið til að taka fluguna. Að mínu mati er þetta skemmtilegasta veiðiaðferðin og án efa sú sem er mest spennandi. Það er eitthvað sérstakt við það að sjá laxinn koma upp, elta fluguna, taka hana eða jafnvel slá í hana með … Lesa meira

Hvernig staðan er í Skotlandi

Hér er yfirlit yfir aflabrögð síðustu viku (vikan sem lauk 25. apríl 2026) í helstu ánum, þar sem „springers“ – þessir silfruðu og sterku vorgestir – eru að láta sjá sig í auknum mæli. River Tay og hliðarár Tay-kerfið átti fína viku, sérstaklega þar sem vatnsstaða fór lækkandi eftir fremur blautt vor. Portnacraig-svæðið í ánni … Lesa meira

Laxaþjóð / A Salmon Nation

Sýnd verður kvikmyndin Laxaþjóð | A Salmon Nation eftir Patagonia Films, miðvikudaur 29. apríl kl. 19-22 í Bíó Paradís Myndin beinir sjónum að íslenskum fjörðum, ám og samfélögum á Íslandi sem þeim tengjast. Í myndinni er varpað ljósi á hvernig laxeldi í opnum sjókvíum hefur áhrif bæði á umhverfið og fólkið sem tengist þessum vatnasvæðum. … Lesa meira

Veiðispá 2026: Er viðsnúningur í vændum á Norðurlandi?

Laxveiði á Norðurlandi er þekkt fyrir miklar sveiflur – frá sögulegum metárum yfir í djúpar lægðir. Þegar rýnt er í söguleg gögn Hafrannsóknastofnunar frá 1985 til 2025 kemur eitt mynstur alltaf aftur: Eftir djúpa lægð fylgir næstum undantekningalaust kröftugt batatímabil. Gögn Landssambands veiðifélaga (angling.is) frá nýliðnu sumri staðfesta að árið 2025 markar sögulegan lág-punkt í … Lesa meira

Húsin fyrir austan

Six River Iceland stendur í stórræðum þessa dagan en verið er að skipuleggja og undirbúa byggingu á tveimur glæsilegastu veiðhúsum landsins. . Hofsá Húsið í Hofsá kemur til með að vera í landi Einarsstaða og munu mörgum þykja það skjóta skökku við og halda að það muni lengja keysluna uppá svæði I. Samkvæmt Gísla Ásgeirs … Lesa meira

Nýtt ráð frá Haugnum : Veiða í lituðu vatni

Ég vil byrja á því að þakka lesendum viðtökurnar og gleðilegt sumar og megi það vera okkur gjöfult. Þegar við göngum á vit nýrra ævintýra á komandi sumri Að veiða í lituðu vatni getur verið hin besta skemmtun, það er að segja þegar árnar eru að hreinsa sig eftir að hafa farið í kakó. Það … Lesa meira